Hvað er Orkuþon?
Orkuþon er okkar heiti yfir svokallað Hackaþon.
Hakkaþon (eða "hackathon") er viðburður þar sem fólk kemur saman til að vinna að nýsköpun, lausnum eða hugmyndum yfir stuttan tíma, oft 24-48 klukkustundir. Það er blanda af "hack" (óformleg nálgun við forritun eða lausnaleit) og "marathon" (langt átak). Markmið hakkaþons er að búa til prótótýpu, lausn eða hugmynd á stuttum tíma.
Þátttakendur, sem geta verið forritarar, hönnuðir, rafvirkjar, viðskiptafræðingar eða annað sérhæft fólk, mynda teymi til að leysa ákveðin vandamál eða vinna með ákveðnar hugmyndir. Áherslan er á sköpunarkraft, samstarf og hraða.
Í lok hakkaþonsins kynna teymið niðurstöðurnar sínar fyrir dómnefnd og örðum keppendum, og síðan eru veitt verðlaun fyrir bestu hugmyndina eða framúrskarandi lausn. Þetta er vinsælt hjá fyrirtækjum og stofnunum sem vilja ýta undir nýsköpun eða fá ferskar hugmyndir.
Við erum mjög spennt að prófa þetta innan veggja Orkuveitunnar og vonum að þetta verði skemmtilegur og skapandi viðburður fyrir alla þá sem taka þátt.
Dagskrá
Spurningar
Staðsetning
Elliðaárstöðin
Rafstöðvarvegi 6, 110 Reyjkavík
Hóparnir
3-7 í hverju teymi
Við hvetjum ólíka aðila að vinna saman
Verðlaun
Tilkynnt síðar